Ágrip af sögu skólans
Tónlistarskóli Bessastaðahrepps var stofnaður 1987, en frá 1982 var í hreppnum starfrækt deild úr Tónlistarskóla Garðabæjar. Aðalhvatamenn að stofnun hennar voru Erla Sigurjónsdóttir þáverandi oddviti, Jytte Frímannsson og María Sveinsdóttir. Alma Hansen var skólastjóri Tónlistarskóla Garðabæjar á þessum tíma, en 1984 tók Gísli Magnússon píanóleikari við stjórn skólans. Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir var deildarstjóri Álftanesdeildar frá 1984 og síðan skólastjóri Tónlistarskóla Álftaness frá upphafi.
Hlutverk og markmið
Hlutverk skólans er að stuðla að aukinni hæfni nemenda til að flytja, njóta og skilja tónlist. Efla tónlistarlíf almennt og gera nemendur virkari og sjálfstæðari hlustendur. Starfsemi skólans byggir meðal annars á þeim grunni að markvisst tónlistarnám stuðli að auknum þroska nemenda. Vitað er að tónlistarnám þjálfar nemendur í öguðum vinnubrögðum, bæði sem einstaklinga og í hópi, bætir sjálfsímynd og árangur í almennu námi. Skólinn hyggst ná markmiðum sínum með því að veita almenna tónlistarfræðslu, þ.e. að kenna nemendum sínum að leika á hljóðfæri, syngja og skapa eigin tónlist.
Námsgreinar
Hljóðfæranám fer fram í einkatímum og byggist á náinni samvinnu kennara og nemanda. Fullt nám er 2 x 30 mínútur eða 1 x 60 mínútur í viku hverri. Í upphafi er lögð áhersla á undirstöðuatriði í hljóðfæraleik; nótnalesti, túlkun, tækni og tónfræði.