Námið
Hljóðfæranám fer fram í einkatímum og byggist á náinni samvinnu kennara og nemanda. Fullt nám er 2 x 30 mínútur eða 1 x 60 mínútur í viku hverri. Í upphafi er lögð áhersla á undirstöðuatriði í hljóðfæraleik; nótnalesti, túlkun, tækni og tónfræði. Eftir því sem nemandinn nær betri tökum á hljóðfærinu tekst hann á við og kynnist verkum frá hinum ýmsu skeiðum tónbókmenntanna. Leitast er við að hafa efnisvalið fjölbreytt og taka tillit til áhugasviðs nemenda. Annar mikilvægur þáttur námsins er að virkja sköpunarþörf og ímyndunarafl hvers einstaklings svo þeir þættir fái betur notið sín.
Skapandi starf
Í aðalnámskrá tónlistarskóla er gert ráð fyrir að eigin lagasmíðar séu hluti af náminu. Kennarar sinna skapandi starfi í hljóðfæratímum og tónsmíðahátíð er orðin fastur liður í starfi skólans.
Samspil
Samspil er mikilvægur þáttur í hljóðfæranáminu og ánægja af slíku hópstarfi er jafnframt hvatning fyrir hvern og einn til framfara í tónlistarnáminu. Reynt er að sjá til þess að allir nemendur sem hafa til þess getu og þroska öðlist reynslu í samleik, jafnt í stórum hópum sem smáum.
Tónfræðigreinar
Tónfræði er kennd í samræmi við aðalnámsskrá tónlistarskólana. Leitast er við að hafa námið fjölbreytt þannig að nemendur kynnist tónlistinni frá sem flestum sjónarhornum. Dæmi um áfanga í tónfræði er: hlustun, tölvur og tónlist, tónsmíðar/sköpun og tónheyrn. Tónfræði er skyldufag fyrir alla, frá með 5. bekk.