» 10. March 2010
Nýtt fréttabréf
Nú hefur nýtt fréttabréf komið út frá Tónlistarskólanum.
Ýmislegt spennandi er framundan.
NJÓTIÐ VEL
Tónlistarskóli Álftaness
Álftanesskóla við Breiðumýri
Kt. 440169-6869
Sími: 565 2625
Skólastjóri: 565 3191
Nú hefur nýtt fréttabréf komið út frá Tónlistarskólanum.
Ýmislegt spennandi er framundan.
NJÓTIÐ VEL
Stigspróf verða haldin mánudaginn 22, þriðjudaginn 23 og miðvikudaginn 24 mars.
Tónlistarskólar á öllu landinu blása til tónleika 13. mars en þann dag verða svæðisbundnir tónleikar. Á stór-Reykjavíkursvæðinu verða tónleikarnir í sal FÍH Rauðagerði 27, 108 Reykjavík. Kynnir á tónleikunum er Guðrún Gunnarsdóttir, söngkona.
Okkar tónlistarskóli sendir píanótríó en það skipa: Kristín Anna Arnalds, fiðla, Sólveig Vilhjálmsdóttir, selló og Linda Björk Bjarnadóttir, píanó og munu þær flytja 1. kafla úr píanótríói eftir W.A. Mozart. Við óskum þeim góðs gengis. Þær munu spila á tónleikum I kl. 12.30. Tónleikar II eru kl. 14.00 tónleikar III kl. 15.30 og svo loks lokaathöfn-afhending viðurkenninga og verðlauna kl. 16.45.
LOKATÓNLEIKAR NÓTUNNAR
Lokatónleikar verða svo haldnir laugardaginn 27. mars í Langholtskirkju í Reykjavík.
ALLIR VELKOMNIR- AÐGANGUR ÓKEYPIS
Tónleikarnir verða í Hátíðarsal Álftanesskóla og byrja kl. 10.30.
Þeir eru haldnir í kaffihúsastíl á hálftíma fresti.
Veitingar verða seldar á vægu verði í umsjón Foreldra- og velunnarafélags tónlistarskólans.
ALLIR VELKOMNIR
Páskafrí í Tónlistarskólanum verður frá og með mánudeginum 29. mars og til þriðjudagsins 6. apríl. Kennsla hefst miðvikudaginn 7. apríl.
Tónleikar verða haldnir laugardaginn 27. febrúar í Hátíðarsalnum.
Vetrarfrí verður í tónlistarskólanum frá og með miðvikudeginum 17. febrúar og til föstudagsins 19. febrúar.
Nú hefur nýtt fréttabréf komið út í desember og verið sent á öll netföng nemenda og foreldra/forráðamanna.
Njótið vel