Tónlistarskóli Álftaness
Álftanesskóla við Breiðumýri
Kt. 440169-6869
Sími: 565 2625
Skólastjóri: 565 3191





» 12.01.12

TÓNSMÍÐAHÁTÍÐ

Miðvikudaginn 25. janúar verður tónsmíðahátíðin haldin í Hátíðarsal Íþróttamiðstöðvarinnar kl. 18.00.
Þar fá nemendur tækifæri til að flytja eigin tónsmíðar.
Þetta er mikið tilhlökkunarefni eins og alltaf :)
ALLIR VELKOMNIR

» 9.01.12

FORELDRAVIKA

Vikuna 23. – 27. janúar verður foreldravika í skólanum.
Þá er foreldrum/forráðamönnum boðið að mæta með börnum sínum
í hljóðfæratíma og fylgjast með framvindu námsins.
Kennarar og skólastjóri leggja mikla áherslu á að foreldrar nýti sér þetta tækifæri og fái þ.a.l. betri innsýn inn í námið, hitti kennarann
og fái upplýsingar um hvernig hægt er að aðstoða barnið við hljóðfæraæfingar heima við.
Hlökkum til að sjá alla “unga sem aldna” !

» 15.12.11

JÓLAKVEÐJA

Kennarar og skólastjóri Tónlistarskóla Álftaness óska öllum nemendum sínum og fjölskyldum þeirra og Álftnesingum öllum gleðilegra jólahátíðar og farsældar á nýju ári.
Þökkum fyrir allar ánægjulegar stundir á liðnu ári.

» 15.12.11

JÓLAFRÍ

Síðasti kennsludagur fyrir jól er föstudagurinn 16. desember.
Kennsla hefst aftur fimmtudaginn 5. janúar 2012.

» 28.11.11

JÓLATÓNLEIKAR

Við minnum á jólatónleikana okkar þann 10. des.
Tónleikarnir verða haldnir í Bessastaðakirkju kl. 14. og 16.
Að venju verður fjölbreytt efnisskrá með einleiks- og samspilsatriðum.
Tónleikarnir hafa ætíð verið mjög vel sóttir og sett skemmtilegan
svip á aðventuna.

ALLIR VELKOMNIR

» 18.11.11

VETRARFRÍ

Við minnum á vetrarfríið á mánudaginn 21. nóvember.
Hafið það gott.

» 9.11.11

FRÉTTABRÉF

Nú hefur nýtt fréttabréf komið út í nóvember og verið sent á öll netföng nemenda og foreldra/forráðamanna.
Njótið vel

» 1.11.11

TÓNFUNDVIKA

Tónfundavika er haldin bæði á haust- og vorönn.
Nú verða tónfundirnir dagana 14. til 18. nóvember.
Tónfundir eru óformlegir tónleikar hvers kennara fyrir sig en þar fá nemendur skólans tækifæri til að spila/syngja og eru aðstandendur þeirra hjartanlega velkomnir.
Allir tónfundirnir fara fram í sal Álftanesskóla.

» 14.10.11

HÁDEGISTÓNLEIKAR Á DEGI TÓNLISTARINNAR

Við höldum upp á Dag tónlistarinnar með tónleikum laugardaginn 29. október n.k.
Þema tónleikanna eru íslensk þjóðlög.
Með því viljum við minnast 150 ára afmælis sr. Bjarna Þorsteinssonar tónskálds.
Tónleikarnir eru haldnir kl. 11.00 í Hátíðarsal Íþróttamiðstöðvarinnar.

ALLIR VELKOMNIR

» 2.09.11

FORELDRAVIKA

Vikuna 12. til 16. september verður foreldravika í skólanum.
Þá er foreldrum/forráðamönnum boðið að mæta með börnum sínum
í hljóðfæratíma og fylgjast með framvindu námsins. Kennarar og skólastjóri leggja mikla áherslu á að foreldrar nýti sér þetta tækifæri og fái þ.a.l. betri innsýn inn í námið, hitti kennarann og fái upplýsingar um hvernig hægt er að aðstoða barnið við hljóðfæraæfingar heima við.
Hlökkum til að sjá alla “unga sem aldna” !

Older